Prost hefur áhuga á stjórastarfi hjá Renault

Alain Prost (t.v.) með þáverandi ökumanni Prostliðsins, Frentzen.

Alain Prost (t.v.) með þáverandi ökumanni Prostliðsins, Frentzen. mbl.is

Alain Prost, fyrrverandi heimsmeistari ökuþóra í formúlu-1, gefur til kynna, að hann hafi áhuga á að taka við liðsstjórastarfi hjá Renault. Alla vega vill hann ekki útiloka að hann ráði sig til liðsins í stað hins burtrekna Flavio Briatore.

Er Bob Bell var útnefndur til að stýra Renault til bráðabirgða í kjölfar brottreksturs Briatore linnti vangaveltum um að Prost myndi taka við starfinu.

Bell segir nú alls óvíst að hann verði í liðsstjórastarfinu lengur en til vertíðarloka. Fyrir bragðið hefur umræðan um Prost blossað upp að nýju.

„Þetta er flókið mál,“ segir Prost, sem er 54 ára og á sínum tíma fjórum sinnum meistari ökumanna, í samtali við belgíska dagblaðið  l'Avenir. Sjálfur hefur hann ekki verið viðriðinn formúlu-1 frá því að lið í hans eigu fór á hausinn og hætti ári ð2001.

„Ég er ekki í atvinnuleit, en þetta er nokkuð sem gæti verið áhugavert. Það veltur allt á því hvað Renault vill,“ bætir Prost við.

Í samtalinu kemur hann inn á örlög Prostliðsins og segir: „Einhvern tíma mun ég skrifa bók sem lýsir því dæmi öllu. Það vita það mjög fáir hvað raunverulega gerðist. Og að biti í því púsli féll nýlega af stalli sínum,“ segir Prost.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is