Kristján Einar lýkur vertíðinni í Barcelona

Kristján Einar leggur af stað í Katalóníuhringinn í Barcelona. stækka

Kristján Einar leggur af stað í Katalóníuhringinn í Barcelona.

Kristján Einar Kristjánsson tekur þátt í lokaumferðum hinnar opnu evrópsku formúlu-3 í Katalóníuhringnum í Barcelona um helgina. Hefur hann keppni í fyrra mótinu í áttunda sæti í sínum flokki.

Tímatökurnar í morgun hófust í rigningu en síðan stytti upp og var hringurinn þurr undir lokin. „Ég fór út á regndekkjum en kom ekki inn til að skipta í þurrt fyrr en undir lok tímatökunnar. Það reyndist einfaldlega of seint og ég endaði áttundi á þurrdekkjum eftir að hafa verið með þriðja besta flokkstímann á blautu.

Svo það er ekkert um annað að ræða en vinna sig upp á við þegar út í keppnina er komið,“ sagði Kristján Einar.

Ríkissjónvarpið sýnir beint frá báðum keppnum í Barcelona, en sú fyrri stendur nú yfir. Á morgun hefst útsending klukkan 15:00.

Kristján Einar hefur verið við æfingar á brautinni í tvo daga en hann er eini keppandi helgarinnar sem er að aka hana í fyrsta sinn.

„Þetta er öflug braut og reynir mikið á mann í stóru löngu beygjunum sem hún er fræg fyrir. En hún er ekki sú erfiðasta sem ég hef kynnst.  Hins vegar eru svo margir Spánverjar í mótaröðinni,  og þetta er heimabraut þeirra, að það verður ekkert gefið eftir í keppninni, svo mikið er víst,“ sagði Kristján Einar í dag.

West Tec liðið hefur átt góðu gengi að fagna í Barcelona. Norðmaðurinn Thor Christian Ebbesvik og liðsfélagi Kristján Einars vann copa-flokkinn þar í hitteðfyrra, 2007. Og gangi allt upp nú eru líkur á að annar liðsfélagi hans, Callum Macleod,  geti tryggt sér meistaratitilinn í copa-flokknum í ár.


Kristján Einar klár í slaginn í Barcelona.

Kristján Einar klár í slaginn í Barcelona.

Kristján Einar í Barcelona.

Kristján Einar í Barcelona.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is