Sauber bíður eftir FIA

Beðið er niðurstöðu FIA um hvort arftaki BMW-liðsins verði með á næsta ári. stækka

Beðið er niðurstöðu FIA um hvort arftaki BMW-liðsins verði með á næsta ári. SERGIO MORAES

Í höfuðstöðvum hins fráfarandi formúluliðs BMW í Hinwil í Sviss er beðið svara frá Alþjóða akstursíþróttasambandinu (FIA) um stöðu liðsins í framhaldi af því að Toyota hefur dregið lið sitt úr keppni.

Með ákvörðun Toyota opnaðist líklega sæti á rásmarkinu fyrir arftaka BMW, sem ekki hefur fengið nafn en er almennt nefnt undir gamla nafni liðsins, Sauber.

Toyota skuldbatt sig hins vegar til keppni út 2012 með undirritun svonefnd concorde-samkomulags. Það gerði BMW hins vegar ekki áður en frestur til þess rann út. 

BMW var því úthlutað sæti 14. liðsins og þar með aðild að keppni 2010 ef eitthvað lið  félli úr. Í því sambandi var fremur búist við að eitthvert nýju liðanna þriggja kæmust ekki á rásmarkið.

Vegna undirritunar Toyota undir concorde-samkomulagið munu nýir eigendur liðsins, verði það selt, halda sæti. Meðan málið er ekki til lykta leitt af FIA er Sauber, og eigendur þess, hangandi  í lausu lofti.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is