Buemi áfram hjá Toro Rosso
Svissneski ökuþórinn Sebastien Buemi hefur skrifað undir samning um að keppa áfram fyrir Toro Rosso á næsta ári. Hann stóð sig vel á jómfrúarári sínu og föluðust nokkur lið eftir þjónustu hans.
„Ég var í sambandi við nokkur lið vegna góðs árangurs míns undir lok vertíðarinnar,“ sagði Buemi við sjónvarpsstöðina Television Suisse Romande.
„Toyota var möguleiki því liðið hafði enga ökumenn ráðið. Það var ekki eini kosturinn og ég átti einnig alltaf í viðræðum við [eigendur Toro Rosso] Red Bull. Að endingu ákvað ég að skrifa undir hjá Toro Rosso fyrir næsta ár,“ bætti hann við.
Hann gaf til kynna í samtalinu, að annar nýliði Toro Rosso á nýliðinni keppnistíð, spænski ökuþórinn Jamie Alguersuari, yrði áfram hjá liðinu. Hann hóf keppni á miðri vertíð.







