BMW selur aftur til Sauber
BMW keypti liðið af Peter Sauber fyrir fjórum árum en hefur nú selt honum það til baka. SERGIO MORAES
BMW hefur samþykkt að selja formúlulið sitt aftur til Peter Sauber, fyrrum eiganda þess, en salan til fjárfestingarfélagsins Qadbak er farin út um þúfur.
Sauber kaupir liðið með þeim skilyrðum að það fái leyfi til keppni í formúlu-1 á næsta ári.
BMW ákvað í sumar að draga sig út úr formúlu-1 og samdi síðan um að selja það svissneska fjárfestingarfélaginu Qadbak. Í dag sagði þýski bílsmiðurinn að þeir samningar yrðu ekki til lykta leiddir.
Í staðinn segist BMW hafa selt liðið Peter Sauber, sem stofnaði eigið lið, Sauber, árið 1993 og hélt því til keppni þar til BMW keypti það fyrir fjórum árum.
Það er hluti af kaupsamningnum, að fækka þarf starfsmönnum í bílsmiðjunni í Hinwil í Sviss úr 388 starfsmönnum í um 250.
Enn er óljóst hvort Sauberliðið geti verið með í formúlu-1 á næsta ári vegna ákvarðana Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) þegar liðum var fjölgað fyrir næsta ár. Bíður Sauber enn niðurstöðu í því máli frá FIA.







