Theissen hverfur líka úr formúlunni

Theissen (nær) og Sauber skýra frá kaupum þess síðarnefnda á BMW liðinu. stækka

Theissen (nær) og Sauber skýra frá kaupum þess síðarnefnda á BMW liðinu. reuters

Mario Theissen hefur ákveðið að halda starfi sínu sem yfirmaður akstursíþróttadeildar þýska bílaframleiðandans BMW fremur en fylgja formúluliði BMW sem selt hefur verið til baka til fyrrum eiganda þess, Peter Sauber.

Er BMW ákvað að draga sig út úr formúlu-1 sagðist Theissen opinn fyrir því að fylgja liðinu til nýrra eigenda og stjórna því áfram. Með ákvörðun hans nú heyrir það sögunni til og hverfur hann því af vettvangi formúlunnar einnig.

BMW keypti Sauberliðið af Peter Sauber fyrir fjórum árum. Eftir að sala á því til fjárfestingarfélags með rætur í arabaríkjum fór út um þúfur seldi BMW liðið til baka til Sauber.

Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur enn ekki staðfest hvort það verði meðal keppnisliða formúlu-1 á næsta ári. Á vefsetrinu formula1.com segist Sauber mjög bjartsýnn á að liðið verði með og býst hann við staðfestingu á því fljótlega.

Hann segir smíði 2010-bílsins hafa miðað mjög vel og óvissa um framtíð liðsins hafi engu raskað í þeim efnum.

 
Sauber er bjartsýnn á að lið hans keppi í formúlu-1 á næsta ári.

Sauber er bjartsýnn á að lið hans keppi í formúlu-1 á næsta ári. reuters

Peter Sauber hefur keypt lið sitt gamla til baka frá BMW.

Peter Sauber hefur keypt lið sitt gamla til baka frá BMW.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is