Bitist um Renaultliðið
Komið er í ljós, að a.m.k. tveir aðilar eru að bítast um Renaultliðið í formúlu-1. Annars vegar breska kappakstursfyrirtækið Prodrive og hins vegar fjárfestingarsjóðurinn Genii Capital í Lúxemborg.
Forstjóri Renaultfyrirtækisins franska, Carlos Ghosn, lét í ljós efasemdir í haust um að ávinningur væri af því fyrir bílaframleiðanda að tefla fram liði í formúlu-1.
Í millitíðinni hefur Renault borist kauptilboð í liðið, ekki bara eitt, heldur a.m.k. tvö, að sögn blaðsins Le Parisien. Og það sem áður var talið að væri samstarfsaðili David Richards hjá Prodrive, þ.e. viðskiptajöfurinn Gerard Lopez, er í raun keppinautur hans.
Lopez er eigandi fyrrgreinds fjárfestingarfélags, Genii Capital, sem á víða eignir, m.a. Charlie Chaplin safnið í Sviss og umboðsfyrirtækið Gravity Sports Management sem hefur fjölda ökumanna á sínum snærum.
Hugmynd Lopez mun vera að taka við og annast fjármál liðsins en að það keppi a.m.k. næstu tvö árin undir merkjum Renault. Hefur hann boðist til að kaupa 75-100% hlutafjár liðsins og yfirtaka einnig og viðhalda þróunarverkefni Renault fyrir unga ökumenn.
Ghosn er sagður hlynntur þeirri lausn sem Lopez leggur fram og hafi hún hlotið betri undirtektir en tilboð Richards á fundi framkvæmdastjórnar Re nault í París í gær. Aðalstjórn Renault hefur verið kvödd saman í næstu viku og gæti dregið til tíðinda þar.
Engin ákvörðun mun hafa verið tekin í gær, enda þarfnist bæði tilboðin betri skoðunar. Það flækir málið fyrir æðstu stjórnendur franska bílrisans, að stjórnendur formúluliðins munu hlynntari tilboði Richards, enda hafi hann áratuga reynslu af kappakstri ýmiss konar og árangursríkum rekstri keppnisliða.






