Renault áfram í formúlu-1

Renault keppir áfram í formúlu-1. stækka

Renault keppir áfram í formúlu-1. reuters

Stjórn franska bílaframleiðandans Renault ákvað á fundi í París að tefla áfram liði sínu fram til keppni í formúlu-1. Verður því ekkert af því að fjórði bílsmiðurinn heltist úr lestinni á einu ári, til viðbótar við Honda, BMW og Toyota.

Renault hefur ákveðið að selja ótilgreindum fjárfesti meirihluta í liðinu en því verður samt áfram teflt fram í nafni franska bílafyrirtækisins. Herma fregnir, að Renault muni aðeins eiga 25% í liðinu, hafi ákveðið að selja 75% í því.

Að minnsta kosti fjórir aðilar hafa boðist til að kaupa sig inn í liðið en ekki verður skýrt frá því hver eða hverjir hafa orðið fyrir valinu fyrr en eftir helgi.

Kaupsýslumaður í Lúxemborg, Gerard Lopez, hefur staðfest að hann sé meðal þessara og hafi verið reiðubúinn að kaupa þrjá fjórðu í Renaultliðinu - og að því yrði samt sem áður teflt fram undir óbreyttum merkjum.

Þá hefur Bretinn David Richards sóst eftir að komast yfir liðið eða hluta þess. Hann hefur mikla reynslu af rekstri keppnisliða í ralli og formúlu-1.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is