Kobayashi til Sauber

Kobayashi verst Button og Nakajima í Sao Paulo. stækka

Kobayashi verst Button og Nakajima í Sao Paulo. mbl.is/toyotaf1

Kamui Kobayashi, varamaðurinn sem sló í gegn hjá Toyota í tveimur síðustu mótum ársins, mun keppa í formúlu-1 á næsta ári. Hann hefur verið ráðinn til Sauberliðsins.

Kobayashi stóð sig fádæma vel í brasilíska kappakstrinum og síðan í Abu Dhabi. Þótti stefna í að hann yrði ráðinn til að keppa fyrir Toyota á næsta ári, en nokkru eftir vertíðarlok ákvað Toyota hins vegar að draga sig út úr keppni í formúlu-1.

„Allt frá því ég hóf keppni í akstursíþróttum hefur mig dreymt um að keppa í formúlu-1. Nú er sá draumur að rætast,“ segir Kobayashi í tilefni ráðningarinnar til Sauber, arftaka BMW-liðsins.

„Ég er alsæll yfir því að frammistaða mín í tveimur síðustu mótunum í ár hafa tryggt mér keppnissæti. Ég mun gera mitt besta fyrir lið Peter Sauber og er stoltur yfir því að geta haldið nafni Japans á lofti í formúlu-1,“ bætir  hann við.

Með samningnum við Sauber sleppur Kobayashi við að þurfa snúa heim til Japans og vinna á sushi-veitingastað föður síns. Það sagði hann verða hlutskipti sitt eftir lokamótið í Abu Dhabi, finndi hann ekki nýtt starf í formúlunni.


Kobayashi á ferð í lokamótinu í Abu Dhabi.

Kobayashi á ferð í lokamótinu í Abu Dhabi. reuters

Kobayashi ræðir við tæknimann hjá Toyotaliðinu.

Kobayashi ræðir við tæknimann hjá Toyotaliðinu. mbl.is/toyotaf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is