Renault selur Genii hlut í liðinu

Renault keppir áfram eins og ekkert hafi í skorist. stækka

Renault keppir áfram eins og ekkert hafi í skorist. SERGIO MORAES

Renault hefur staðfest það sem legið hefur í loftinu, að það verði áfram í formúlu-1 um ókomin ár. Hins vegar hefur stór en ótilgreindur hlutur í liðinu verið seldur fjárfestingarfélaginu Genii sem er með bækistöðvar í Lúxemborg.

Ekkert af þessu eru nýjar fréttir fyrir lesendur formúluvefjar mbl.is en með staðfestingunni eru margra vikna óvissutímar um framtíð Renaultliðins að baki. 

Renault tók viðskiptajöfurinn Gerard Lopez fram yfir hinn breska kappakstursfrömuð David Richards. Renault og Lopez munu reka liðið í samstarfi en samningar þeirra eru ekki að fullu frágengnir.

Liðinu verður teflt fram í nafni Renault og undir merkjum franska bílsmiðsins. Sér hann fram á að formúla-1 verði umhverfisvænni með tímanum og mun óspart hvetja til þess.

Í yfirlýsingu segir Renault ákvörðun sína um að halda áfram keppni í formúlu-1 endurspegla traust í garð yfirvalds íþróttarinnar um að gera íþróttina vistvænni.

Hyggst Renault m.a. nota þátttöku sína til að sannreyna færni sína til að framleiða kraftmikla en sparneytna bíla.

Þá staðfesti Renault jafnframt í gær, að það myndi áfram sjá Red Bull liðinu fyrir mótorum í keppnisbíla sína á næsta ári.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is