Kubica áfram hjá Renault

Robert Kubica tekur við af Alonso hjá Renault. stækka

Robert Kubica tekur við af Alonso hjá Renault. reuters

Robert Kubica er ánægður með þróun mála hjá Renault og segist verða þar um kyrrt, eins og ekkert hafi í skorist. Efasemdir spruttu þegar í stefndi að meirihluti í liðinu yrði seldur fjárfestingarfélagi með aðsetur í Lúxemborg.

Kubica og umboðsmenn hans vildu fá á hreint hvernig málum yrði háttað við aðkomu nýrra meðeigenda að liðinu, Genii Capital.

Umboðsmaður ökumannsins, Daniele Morelli, segir við breska útvarpið BBC, að nú séu mál komin á hreint varðandi fjármál liðsins og bílsmíðina. Kubica samdi við lok nýliðinnar keppnistíðar við Renault en hann hafði keppt fyrir BMW í formúlu-1 frá 2007.

Morelli vísar því á bug, að þau Kubica hafi notað óvissuna og síðar aðkomu meðeigenda til þess að krefjast hærra kaups til handa ökumanninum.

„Robert vill bíl sem getur eitthvað. Það er ökumanni gagnslaust að fá hærra kaup ef bíllinn getur ekkert og maður hann tapar af frammistöðubónusum fyrir vikið. Það er betra að vinna stig og komast á pall en fá hærra grunnkaup,“ segir Morelli.


Kubica vill getugóðan Renaultbíl.

Kubica vill getugóðan Renaultbíl. mbl.is/renaulf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is