Sauber frumsýnir 31. janúar

Peter Sauber hefur keypt lið sitt gamla til baka frá BMW. stækka

Peter Sauber hefur keypt lið sitt gamla til baka frá BMW. reuters

Sauber er fyrsta formúluliðið sem dagsett hefur frumsýningu 2010-bíls. Verður hann sviptur hulum við Valenciabrautina á Spáni 31. janúar en daginn eftir hefjast fyrstu vetraræfingar formúluliðanna þar.

Samtök formúluliðanna (FOTA) höfðu gert sér vonir um að öll liðin 13 sýndu bíla sína þar á sameiginlegri frumsýningarathöfn. Af því gat ekki orðið í ár en stefnt er að slíkum viðburði árið 2011.

Peter Sauber, stofnandi liðsins, hefur eignast það aftur eftir að sala á BMW-liðinu til fjárfestingarfélagsins Qadbak gekki til baka. Formlega er liðið enn kennt við BMW auk Sauber og óljóst hvort því verður breytt áður en fyrsta mót vertíðarinnar rennur upp.

Sauber mun ekki nota BMW-mótora í bílunum heldur hefur hann aftur tekið upp samstarf við sinn fyrri mótorsmið, Ferrari. Aðeins einn ökuþór hefur enn sem komið er verið ráðinn til Sauber, Japaninn Kamui Kobayashi sem sló í gegn sem nýliði og varamaður hjá Toyota í síðustu tveimur mótum nýliðinnar vertíðar.
Kamui Kobayashi sló í gegn á Toyotu í tveimur síðustu mótunum 2009.

Kamui Kobayashi sló í gegn á Toyotu í tveimur síðustu mótunum 2009. mbl.is/toyotaf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is