De la Rosa keppir fyrir Sauber

Pedro de la Rosa við skyldustörf hjá McLaren í Silverstone 2005.

Pedro de la Rosa við skyldustörf hjá McLaren í Silverstone 2005. mbl.is/Ágúst Ásgeirsson

Pedro de la Rosa hefur verið ráðinn til að keppa fyrir Sauberliðið í ár, en hann er 38 ára og hefur verið varaökumaður McLarenliðsins frá 2003. Hann verður liðsfélagi japanska nýliðans Kamui Kobayashi, sem er 15 árum yngri.

De la Rosa hóf þátttöku í formúlu-1 árið 1998 sem reynsluökumaður Jordanliðsins. Árið eftir gerðist hann keppnismaður Arrowsliðsins og þreytti frumraun sína í Melbourne. Stóð hann sig firna vel því á frekar slökum bíl kláraði hann keppni í stigasæti, eða því sjötta. 

Spænski ökuþórinn ók einnig fyrir Arrows 1999 og 2000 en gekk til liðs við Jagúar og keppti fyrir það lið 2001 og 2002.

De la Rosa á 71 mót að baki en níu sinnum hljóp hann í skarð keppnisþóra McLaren á árunum sjö sem hann starfaði þar. Það nýtti hann sér vel, kláraði keppnina í Barein 2005 í fimmta sæti og setti hraðasta hring dagsins í leiðinni.

Árið eftir keppti hann í helmingi mótanna eða átta. Í þeim aflaði hann 19 stiga í titilkeppninni og komst á verðlaunapall í ungverska kappakstrinum í Búdapest. Kláraði það mót í öðru sæti sem er hans besti árangur í formúlu-1.

Peter Sauber sagði í dag, að lið hans ætti eftir að njóta góðs af því að de la Rosa hefði starfað hjá toppliði undanfarin sjö ár. Þess muni Kamui njóta líka.


Pedro de la Rosa á palli í fyrsta sinn, í Búdapest 2006.

Pedro de la Rosa á palli í fyrsta sinn, í Búdapest 2006. mbl.is/mclarenf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is