Button vill komast í minnihlutahópinn

Button heimsótti Huga Boss í tilefni tískuvikunnar í Berlín í byrjun vikunnar. stækka

Button heimsótti Huga Boss í tilefni tískuvikunnar í Berlín í byrjun vikunnar.

Jenson Button segist vilja tilheyra minnihlutahóp ökuþóra í sögu formúlu-1. Skírskotar hann til þess, að einungis 30% heimsmeistara hafa unnið titilinn árið eftir fyrsta titilinn.

Meðal keppinauta Buttons í ár verða tveir úr þessum hópi, Michael Schumacher hjá Mercedes og Fernando Alonso hjá Ferrari. Schumacher hefur tekist það oftar en einu sinni og Alonso á árunum 2005 og 2006.

„Tekst mér að verja titilinn? Það er takmarkið. Og það er athyglisvert, að 70% meistaranna hefur ekki tekist það árið eftir. Maður verður því að reyna átta sig á hvers vegna 30% tókst það og mæta andlega tilbúinn til leiks. Að því vinn ég nú,“ sagði Button við breska blaðið The Sun.

Button keppir fyrir McLaren í ár og verður liðsfélagi hans heimsmeistarinn frá í hitteðfyrra, Lewis Hamilton. Hann telur þá eiga eftir að færa McLaren mikla sigra í ár, takist þeim að búa svo um hnúta í bílþróuninni að keppnisbíllinn verði full klár strax í fyrsta móti.

Button mætti með fullbúinn bíl í fyrra og vann fyrstu sjö mót ársins. Hann segir erfitt að leika það eftir, en öllu skipti að bíllinn sé klár í toppslaginn frá fyrstu ræsingu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is