Alguersuari ráðinn
Toro Rosso hefur loks staðfest að spænski ökuþórinn Jaime Alguersuari keppi fyrir liðið í ár. Hann varð í fyrra yngsti ökumaður sögunnar til að keppa í formúlu-1.
Alguersuari, sem er 19 ára, tók við af Sebastien Bourdais frá og með ungverska kappakstrinum. Sjálfur skýrði hann frá því við vertíðarlok sl., að hann væri búinn að skrifa undir samning fyrir 2010 við Toro Rosso en liðið hefur ekki viljað staðfesta það fyrr en nú.
Þetta þýðir að Toro Rosso teflir fram sama ökuþórapari og á seinni hluta síðustu keppnistíðar því áður hafði ráðning Sebastien Buemi verið framlengd.
Jafnframt felst í þessu að í fyrsta sinn í sögunni verða a.m.k. þrír spænskir ökuþórar samtímis í keppni í formúlu-1. Auk Alguersuari eru það þeir Fernando Alonso hjá Ferrari og Pedro de la Rosa hjá Sauber.
Á fyrri hluta komandi keppnistíðar ekur Alguersuari í brautum sem hann hefur aldrei séð áður.







