Skiptast á að aka 2010-bíl Mercedes á fyrsta degi
Michael Schumacher og Nico Rosberg munu skiptast á að aka 2010-bíl Mercedes á fyrsta degi í Valencia á Spáni eftir helgi. Telur liðsstjórinn Ross Brawn mikilvægt að fá viðbrögð frá báðum ökumönnunum á frumakstursdegi bílsins.
Mercedesbíllinn hefur fengið tegundarheitið MGP W01. Nýtur Rosberg heiðursins af því að frumaka honum. „Við viljum gefa báðum kost á að aka honum á fyrsta degi og fá viðbrögð þeirra. Sá dagur snýst um að stemma bílinn af og skoða hvernig allt virkar. Hann verður því tekinn nokkrum sinnum í sundur milli aksturslota og settur aftur saman,“ segir Brawn.
Hann segir að Rosberg muni sinna akstrinum allan næsta dag og Schumacher verði einn um hitunina á þriðja degi.
Brawn segir að liðið hafi einungis sýnt litarsamsetningu bílsins við athöfn í Stuttgart í gær því nýi bíllinn hafi ekki verið tilbúinn til frumsýningar. Í staðinn var útlit hans sýnt á Brawnbíl frá í fyrra. Liðið hafi viljað nýta tímann til þróunar bílsins til fulls en hann verður í staðinn frumsýndur í Valencia eftir helgi.
„Hann er ekki tilbúinn, hann var einfaldlega ekki tilbúinn,“ svaraði Brawn spurningu um hvers vegna bíllinn sjálfur var ekki sýndur í Stuttgart í gær.





