Alonso sannfærður um ágæti Ferraribílsins

Alonso er bjartsýnn á komandi keppnistíð. stækka

Alonso er bjartsýnn á komandi keppnistíð. reuters

Fernando Alonso segist fullur tilhlökkunar og hafa trú á að 2010-bíll Ferrari, sem liðir nefnir F-10, verði samkeppnisfær. Bíllinn var sviptur hulum í höfuðstöðvum liðsins í Maranello á Ítalíu í dag.

Alonso gekk til liðs við Ferrari að loknu síðasta keppnistímabili og leysir Kimi Räikkönen af hólmi. Hann segist rólegur yfir komandi keppnistíð en þar er markmiðið að bæta hressilega um betur frá í fyrra er uppskeran var fremur slök, bæði hjá honum á Renault og fyrir Ferrari.

„Ég er mjög sáttur við framlag allrar tæknisveitarinnar hér. Þeir eru þeir bestu í heimi. Sú vinna sem mun eiga sér stað í febrúar ásamt tillögum okkar Felipe [Massa] varðandi bílinn veitir mér mikið sjálfstraust gagnvart fyrsta kappakstri,“ segir Alonso.

„Við erum með mannskap sem getur sett bílinn upp eins og best verður kosið á örskotsstundu. Tæknisveitin, gögnin úr prófunum í vindgöngum, fjöðrunin, vélvirkjarnir og vélin eykur traust manns. Svo getur allt eins farið að niðurstaðan úr reynsluakstri verði enn meira uppörvandi,“ bætir Alonso við.

Og heimsmeistarinn fyrrverandi lagði áherslu á að samband þeirra liðsfélaganna, hans og Massa, væri mjög gott.

„Felipe og ég keppum báðir fyrir Ferrari. Það er mikilvægt að rauður bíll sigri. Við munum báðir leggja okkur alla fram um að bæta okkur, leggjum okkur báðir 100% fram. Ég hef alltaf átt öfluga ökumenn sem liðsfélaga og samskiptin við þá hafa aldrei verið erfiðleikum bundin. Samband mitt við þá alla er gott og það verður ekkert öðru vísi með Felipe.“


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is