Massa viss um að hafa við Alonso

Massa (t.h.) og Alonso. stækka

Massa (t.h.) og Alonso. reuters

Felipe Massa segir það sér engum áhyggjum valda að þurfa kljást við  Fernando Alonso sem liðsfélaga hjá Ferrari, þrátt fyrir þær miklu væntingar sem gerðar séu til spænska ökuþórsins.

Alonso gekk til liðs við Ferrari með það eitt að takmarki að færa liðinu aftur heimsmeistaratitil ökuþóra. Síðasti heimsmeistari ökuþóra í röðum Ferrari er Kimi Räikkönen, árið 2007.

Og þótt kastljósið hafi að mestu verið á Alonso að undanförnu segist Massa ekkert óttast að verða útundan og falla í skugga af liðsfélaga sínum. Hann segist hafa verið í svipaðri aðstöðu gagnvart Räikkönen og þar áður Michael Schumacher.

„Ég hef í mörg ár orðið að búa við að við miklu sé búist af liðsfélögum mínum. Þegar nýr ökumaður kemur til skjalanna hjá Ferrari eru miklar væntingar gerðar og takmarkið er að við vinnum vel sem lið, til fullkomnunnar.

Liðsfélagi minn verður mjög öflugur, ég hef alltaf skilað góðu verki, lært heilmikið, sýnt margsinnis að ég get ekið til sigurs og barist, óháð því hver liðsfélaginn hefur verið.

Michael [Schumacher] er vinur og ég lærði mikið af honum en á brautinni verðum við keppinautar. Samband okkar verður samt sem áður gott,“ sagði Massa í dag.


Massa (l.t.h.) með Alonso og Ferraristjóranum Montezemolo í dag.

Massa (l.t.h.) með Alonso og Ferraristjóranum Montezemolo í dag. reuters

Massa með fjölskyldunnni sinni litlu, en hann eignaðist son í vetur.

Massa með fjölskyldunnni sinni litlu, en hann eignaðist son í vetur. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is