Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 28.1.2010
| 12:44
| Uppfært
29.1.2010
10:11
Metáhorf á netinu á frumsýningu Ferrari
Öll fyrri met voru slegin er Ferrari frumsýndi formúlubíl sinn í dag. Kostur gafst á að fylgjast með athöfninni í beinni útsendingu á netinu.
Aðsókn að vefsetri Ferrari hefur aldrei verið meiri en meðan sýningin stóð yfir. Voru á fjórðu milljón manna tengdar www.ferrari.com þá stundina.
Svo mikil var aðsóknin að annars öflug tölvukerfi Ferrari áttu fullt í fangi með að sligast ekki undan henni. Nokkrum sinnum fraus vefurinn í nokkrar sekúndur í senn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







