2010-bíll McLaren mjög frábrugðinn forveranum

McLarenliðið frumsýndi keppnisbíl sinn í dag og er hann verulega frábrugðin að hönnun en bíll síðasta árs. Liðsstjórinn Martin Whitmars segir markmiðið klár; að vinna bæði titil bílsmiða og ökuþóra í ár.

Mest áberandi breyting frá í fyrra er að nú er á bíl McLaren svonefndur hákarlsuggi sem nemur nánast við afturvænginn. Slíkan ugga var ekki að finna á bílnum í fyrra en mörg lið voru með slíka útfærslu á sínum bílum.

McLaren heldur sig við sömu litaskipan og útfærslu sem undanfarin ár þrátt fyrir minnkandi aðild mótorsmiðsins Mercedes sem leggur nú megin áherslu á eigið lið og eigin „silfurörvar“.

Liðið er í þeirri óvenjulegu stöðu að vera með heimsmeistara tveggja síðustu ára sem ökuþóra. Árangur liðsins í fyrra var undir væntingum og nú þarf það til viðbótar að kljást við Mercedesliðið. Eigendur þess, þýski bílsmiðurinn Mercedes-Benz, á enn hlut í McLaren, sem ætlunin er þó að losa sig við.

McLarenbíllinn, sem gengur undir tegundarheitinu MP4-25, var sviptur hulum í höfuðstöðvum símafélagsins Vodafone í Newbury, en það er aðal styrktarfyrirtæki liðsins.

Whitmarsh sagði við athöfnina í dag, að góður undirbúningur væri lykill að árangir. „Við höfum undirbúið okkur betur og ítarlegar undir tímabilið í ár en nokkru sinni,“ sagði hann.

„Frábært lið og samkeppnisfær bíll skilar þó því aðeins árangri, að það hafi bestu ökumennina. Hvorugan keppanda okkar þarf að kynna því sín á milli hafa þeir unnið heimsmeistaratitlana tvö undanfarin ár. Það er frábært að geta teflt fram Lewis [Hamilton] og Jenson [Button]. Báðir eru sigurvegarar og báðir vilja vinna í ár. Markmið okkar er klár; það er að sigra,“ sagði Whitmarsh.

Það kemur í hlut reynsluökuþórsins Gary Paffett að frumaka bílnum. Það mun eiga sér stað í Valencia á Spáni á mánudag.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is