Ferraribíllinn hæggengur?

Alonso og Massa við frumsýningu Ferraribílsins sem óttast er að sé ekki nógsamlega hraðskreiður. stækka

Alonso og Massa við frumsýningu Ferraribílsins sem óttast er að sé ekki nógsamlega hraðskreiður. HO

Breska blaðið The Times segir að Ferrari sé þegar að vinna að annarri uppfærslu keppnisbíls ársins, svonefndri B-útgáfu hans, því bíllinn sem það hefur frumsýnt sé ekki nógu hraðskreiður.

Times vitnar til sögusagna í ítölskum fjölmiðlum í þessa veru þar sem fjallað sé um útreikninga á afkastagetu bílsins eftir prófanir í vindgöngum.

Þar segi að forsvarsmenn Ferrari óttist að bíllinn muni ekki reynast eins góður og væntingar hafi staðið til. Og það þrátt fyrir að þróun bílsins í fyrra hafi verið hætt á miðri vertíð svo tæknisveitin gæti einbeitt sér að 2010-bílnum.

Þá segir fyrrverandi Ferrariþórinn Gerhard Berger við svissneska blaðið Blick, að jafnvel þótt Ferrari hafi fengið Fernando Alonso til liðs við sig sé „Ferraripakkinn“ ekki eins öflugur nú og í tíð Michaels Schumacher.

Hann segir liðið nú sakna sárt þeirra Jean Todt, Ross Brawn og hönnuðarins Rory Byrne. „Án rétta mannskapsins lenda menn fljótt í ógöngum,“ segir Berger.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is