Button: „Spenntari en nokkru sinni áður“

Button í aðalstöðvum McLaren. stækka

Button í aðalstöðvum McLaren. mbl.is/McLaren

Heimsmeistarinn Jenson Button skipti um lið eftir síðasta keppnistímabil og segist aldrei hafa verið jafn spenntur að byrja nýja vertíð sem nú, eftir að hafa gengið til liðs við McLaren.

Button varð meistari sem liðsmaður Brawn í fyrra en viðræður um endurnýjun samninga báru ekki ávöxt og hann ákvað að taka nýrri áskorun með því að keppa fyrir McLaren við hlið landa síns og meistara 2008, Lewis Hamilton.

„Ég hef átt annríkt í janúar við að falla inn í liðið. Að fara til nýs liðs er alltaf erfiðleikum bundið. Breytingin er mikil og menn eiga erfitt uppdráttar til að byrja með. En mér hefur verið tekið virkilega vel og andrúmsloftið er mjög gott. Og það er gaman að sjá bílinn í fullri og endanlegri gerð,“ sagði Button við frumsýningu McLaren.

„Ég hlakka mjög til vertíðarinnar. Við leiðumst ekki út í dagdrauma, framundan eru umfangsmiklar bílprófanir, erfið vinna sem inna þarf að hendi áður en vertíðin gengur í garð. Ég er fullur tilhlökkunar, spenntari en nokkru sinni fyrr í aðdraganda fyrsta móts. Áskorunin sem bíður mín er risastór og ég hlakka til að takast á við hana,“ bætti hann við.

Button segir það hafa blásið sér aukinn kjark í brjóst að hafa gengið til liðs við McLaren. Hvötin til að spjara sig sé líka meiri. Eftir að hafa unnið titil ökuþóra hafi verið nauðsynlegt að öðlast nýja áskorun. Því hafi hann gengið til liðs við McLaren. 

„Þegar að fyrsta móti kemur ætlast ég til að við þurfum á engum afsökunum að halda. Og tryggja að ég verði 100% klár í slaginn. Ég ætla mér að vera samkeppnisfær í fyrsta móti, í Barein,“ sagði Button.

Og hann leggur áherslu á að þeir Hamilton vinni vel saman fyrir liðið þrátt fyrir ramma innbyrðis keppni. „Öðru vísi eigum við ekki breskan heimsmeistara við vertíðarlok. Það kemur í ljós við vertíðarlok hvað gerist, og hvor hefur staðið sig betur í mótunum 19 í ár,“ sagði Button.  


Button og Hamilton við 2010-bílinn á frumsýningarathöfn McLaren.

Button og Hamilton við 2010-bílinn á frumsýningarathöfn McLaren. mbl.is/mclarenf1

Button og Hamilton svipta 2010 bíl McLaren hulunni.

Button og Hamilton svipta 2010 bíl McLaren hulunni. mbl.is/mclarenf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is