Hamilton vildi fá Button

Button og Hamilton eru heimsmeistarar áranna 2008 og 2009. stækka

Button og Hamilton eru heimsmeistarar áranna 2008 og 2009. mbl.is/mclarenf1

Lewis Hamilton hefur skýrt frá því, að hann hafi róið að því öllum árum að McLarenliðið réði Jenson Button til sín. Hefði hann legið í liðsstjóranum  Martin Whitmarsh og það talsvert áður en liðið byrjaði að ræða við Button.

Hamilton segist hafa lesið alls kyns sögur um að hinir og þessir ökumenn væru ef til vill á leið til McLaren. Því hefði hann sett sig í samband við Whitmarsh og spurt hvað væri á seyði. 

„Hvað með Jenson?“ segist hafa spurt Whitmarsh en Brawnþórinn var þá ekki meðal þeirra sem orðaður var við McLaren. „Hvers vegna hann, var svarað. Vegna þess að hann er sá besti og þeir vildu fá besta ökumanninn,“ segir Hamilton.

„Ég hef ekkert með ökumannamálin að gera en var statt og stöðugt spurður hver yrði liðsfélagi minn. Því kannaði ég málið og sagði mínar skoðanir,“ bætir hann við.

Hamilton segir það ekki hafa verið honum kappsmál að sjá Heikki Kovalainen hverfa á braut frá McLaren, en hafi skynjað að liðsforystan hafi viljað breytingar.

 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is