Kínverji varaökumaður Renault

Keppnis- og reynsluökumenn Renault við frumsýningu R30-bílsins. Jerome d'Ambrosio l.t.v. og Ho-Pin Tung l.t.h. stækka

Keppnis- og reynsluökumenn Renault við frumsýningu R30-bílsins. Jerome d'Ambrosio l.t.v. og Ho-Pin Tung l.t.h. reuters

Renault hefur ráðið kínverska ökuþórinn Ho-Pin Tung sem fyrsta varamann keppnisökumanna liðsins. Einnig hefur það ráðið Jerome D'Ambrosio og  Jan Charouz sem reynsluökumenn.

Tung og D'Ambrosio koma báðir úr stalli Gravity-umboðsfyrirtækisins sem er í eigu kaupsýslumannsins Gerard Lopez sem orðin er meðeigandi að Renaultliðinu.

Tung fékk að spreyta sig með Renault við bílprófanir í byrjun desember í Jerez á Spáni. Hann er 27 ára og hefur keppt bæði í GP2 formúlunni og verið í fremstu röð í  A1GP-mótunum og í fótboltaformúlunni. Hann spreytti sig einni við reynsluakstur hjá Williams árið 2004.

Víst þykir að ráðning Tungs til Renault geti átt eftir að verða til að auka áhuga á formúlu-1 í Kína og umfjöllun. 

D'Ambrosio er 24 ára Belgi og fyrrverandi meistari í Formula Master formúlunni. Hann keppir í ár í GP2 formúlunni þriðja árið í röð og segir markmið sitt að vinna titil ökumanna.

Charouz var í fyrra í liði Aston Martin Racing sem vann sinn flokk, LMP1, í Le Mans-mótaröðinni. Hann er 22 ár Tékki og mun keppa í ár með P1-liðinu í Renault 3.5 formúlunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is