Massa fljótastur á fyrsta bílprófanadeginum

Massa á ferð í Valencia í dag. stækka

Massa á ferð í Valencia í dag. reuters

Felipe Massa hjá Ferrari lét að sér kveða er hann mætti til fyrsta opinbera verkefnisins á vettvangi formúlu-1 frá ungverska kappakstrinum í fyrra. Setti hann besta brautartíma dagsins við reynsluakstur í Valencia í dag.

Um var að ræða fyrstu opinberu bílprófanalotu formúluliðanna í ár. Massa lét bíða eftir bestu tímum þar til á síðustu mínútum dagsins.  Sýndi hann að hann hefur engu gleymt en hann slasaðist alvarlega í ungverska kappakstrinum í júlí í fyrra.

Hann átti besta tímann framan af degi en eftir hádegi ruddi Pedro de la Rosa hjá Sauber honum úr efsta sætinu á lista yfir hröðustu hringi. Á lokamínútunum endurheimti Massa aftur toppsætið en de la Rosa átti næst besta hring þegar upp var staðið.

Kom frammistaða de la Rosa á óvart og einnig geta Sauberbílsins, en liðið hefur ekki eins öfluga bakhjarla sem BMW undanfarin ár.

Michael Schumacher hefur heldur engu gleymt og var fljótur að komast í tæri við topptímana eftir að hann tók við akstri Mercedesbílsins af Nico Rosberg eftir hádegi.

Á endanum varð hann aðeins 0,4 sekúndum frá tíma Massa en sinn besta hring setti Schumacher undir lok æfingarinnar er brautartímar ökumanna tóku skjótum og miklum breytingum. Útaf fyrir sig eru æfingatímar lítt til samanburðar fallnir en engu að síður þykir Schumacher ekki verra að hafa náð  talsvert betri tíma en Rosberg.

Toro Rosso glímdi við vanda í gírkassa í nýsmíðuðum bíl sínum og náði liðið því ekki mörgum hringjum.

Robert Kubica var ánægður með æfingar dagsins þótt besti tími hans væri sá lakasti. Allt hefði gengið eins og í sögu en á morgun myndi hann prófa sig áfram með jafnvægið í bílnum. Hann sagði mjórri framdekk en áður ættu eflaust eftir að leiða til aukinnar undirstýringar í hraðari beygjum.

Bestu brautartímar ökumanna urðu annars sem hér segir í Valencia í dag:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Massa Ferrari 1:12.574 102
2. de la Rosa BMW 1:12.784 74
3. Schumacher Mercedes 1:12.947 40
4. Rosberg Mercedes 1:13.543 39
5. Paffett McLaren 1:13.846 86
6. Barrichello Williams 1:14.449 75
7. Buemi Toro Rosso 1:14.762 18
8. Kubica Renault 1:15.000 69
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is