Renault frumsýnir R30-bílinn

Kubica og Petrov við Renaultinn á frumsýningunni í Valencia. stækka

Kubica og Petrov við Renaultinn á frumsýningunni í Valencia. reuters

Renaultliðið frumsýndi keppnisbíl komandi  vertíðar síðdegis í gær í Valencia á Spáni. Við það tækifæri var staðfest ráðning rússneska ökumannsins Vitaly Petrov sem keppnismanns við hlið Roberts Kubica hins pólska.

Því er um að ræða algjöra uppstokkun á skipan ökuþóra frá í fyrra hjá Renault. Petrov er 25 ára og varð í fyrra í öðru sæti í stigakeppni ökumanna í GP2-formúlunni.

Hann er og með þessu fyrsti rússneski ökuþórinn til að keppa í formúlu-1.

Þótt gulur litur sé fyrirferðamestur er útlitið talsvert frábrugðið frá í fyrra og svartur litur gefur bílnum sterkan svip. Minnir útlitið um margt á bíl Renault frá upphafsári þátttöku franska liðsins í formúlu-1, árið 1978. Hornir eru litir fyrrverandi aðalstyrktarfyrirtækis liðsins, ING, appelsínugult og hvítt.

Í rauninni er að hefjast nýtt skeið í sögu þátttöku Renault því nýir eigendur eru komnir að liðinu í samstarfi við franska bílafyrirtækið. Starfsemin hefur verið stokkuð upp og nýr liðsstjóri er Eric Boullier.

Við frumsýninguna sagði Bouiller að þótt eigi væri auðvelt að setja sér markmið og ekki á vísan að róa, gerðu liðsmenn sér háleitar vonir um árangur í ár. Markmiðið væri að koma liðinu í toppslaginn á ný eftir slakt gengi í fyrra.

Bouiller sagði ennfremur, að tekin hefði verið viss áhætta í hönnun og þróun R30-bílsins. Ætti bíllinn að verða samkeppnisfær, að hans sögn. Á bílnum er að finna samskonar hákarlsugga ofan á vélarhúsinu og er á bílum sem McLaren og Sauber hafa frumsýnt. Slíkur uggi var á bílum Renault í fyrra en ekki hinna liðanna tveggja.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is