Toro Rosso sýnir fyrsta bílinn sem það smíðar sjálft

Sebastien Buemi og Jamie Alguersuari svipta bíl Toro Rosso hulunni í Valencia í morgun. stækka

Sebastien Buemi og Jamie Alguersuari svipta bíl Toro Rosso hulunni í Valencia í morgun. reuters

Toro Rosso sýndi fulltrúum fjölmiðla keppnisbíl vertíðarinnar í ár í Valencia á Spáni í morgun. Er það fyrsti bílinn sem liðið smíðar sjálft. Ber hann tegundarheitið STR5.

Í ár koma til framkvæmda reglur sem skylda lið til að smíða sjálf bíla sína frá grunni en Toro Rosso hefur fengið bíla úr smiðju móðurliðsins Red Bull til þessa, eða undanfarin fjögur ár.

Franz Tost liðsstjóri segir um tímamót að ræða fyrir Toro Rosso. Hafi það verið mikil áskorun að byggja upp starfsemina innanhúss til að takast á við smíðaverkefnið.  Í því sambandi varð að fjölga starfsmönnum um 80 og stækka bílsmiðjuna til að hýsa þá. Í heildina eru þeir nú um 200.

Þá keypti Toro Rosso vindgöng í Englandi af Red Bull og mun nota þau viðþróunarstarfið.Tost segir það markmið Toro Rosso að verða í hópi átta bestu liða á komandi keppnistíð.

Til stendur að frumaka nýja bílnum í Valencia í dag og kemur það í hlut Sebastien Buemi. Liðsfélagi hans í ár - eins og á seinni hluta síðustu keppnistíðar - verður Jamie Alguersuari.


Buemi og Alguersuari á bíl Toro Rosso við frumsýninguna í dag.

Buemi og Alguersuari á bíl Toro Rosso við frumsýninguna í dag. reuters

Fyrsti bíllinn sem Toro Rosso smíðar sjálft.

Fyrsti bíllinn sem Toro Rosso smíðar sjálft. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is