Massa aftur fljótastur

Kobayashi lét að sér kveða í dag í Valencia. stækka

Kobayashi lét að sér kveða í dag í Valencia. reuters

Felipe Massa hjá Ferrari ók hraðast annan daginn í röð við bílprófanir í Valencia á Spáni í dag, en þar eru sjö formúlulið við reynsluakstur nýrra keppnisbíla sinna.

Massa náði besta hringnum á fyrstu klukkustund æfinganna í morgun en eftir það einbeitti hann sér að löngum aksturslotum. Einnig setti Kamui Kobayashi hjá Sauber sinn besta hring á fyrsta tímanum og reyndist það annar besti tími dagsins.

Eftir því sem leið á daginn bötnuðu tímar annarra ökumanna jafnt og þétt.  Lewis Hamilton hjá McLaren mætti til starfa hjá McLaren í dag og setti þriðja besta tímann. Ók hann einnig í löngum lotum og hið sama gerði Robert Kubica hjá Renault sem var tveimur brotum á eftir Hamilton að tíma.

Kubica setti sinn besta tíma á síðasta hálftímanum en Hamilton um miðjan dag.

Nico Rosberg var einn um akstur Mercedes í dag en Michael Schumacher tekur við af honum á morgun. Rubens Barrichello hélt áfram akstri fyrir Williams annan daginn í röð.

Talsverður fjöldi áhorfenda var í stúkum Valenciabrautarinnar í dag og gær að fylgjast með æfingunum. Töldust þeir vera 7.200 í gær en á morgun er búist við að þeir margfaldist því þá ekur Fernando Alonso fyrir Ferrari. Tveir aðrir meistarar verða þá einnig í brautinni, Jenson Button og Schumacher.

Niðurstaða æfingarinnar í dag varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Massa Ferrari 1:11.722 124
2. Kobayashi BMW Sauber 1:12.056 96
3. Hamilton McLaren 1:12.256 108
4. Kubica Renault 1:12.426 119
5. Rosberg Mercedes 1:12.899 119
6. Barrichello Williams 1:13.377 102
7. Buemi Toro Rosso 1:13.823 107
Hamilton í Valencia í dag.

Hamilton í Valencia í dag. reuters

Alonso mætti til Valencia í dag.

Alonso mætti til Valencia í dag. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is