Alonso heldur Ferrari á toppnum

Alonso ók Ferraribílnum í fyrsta sinn. stækka

Alonso ók Ferraribílnum í fyrsta sinn. reuters

Fernando Alonso sá til þess á fyrsta starfsdegi sínum í 2010 bíl Ferrari, að liðið hélt efsta sæti á þriggja daga æfingalotu formúluliða í Valencia. Tugþúsundir stuðningsmanna hans fylgdust með æfingunni við brautina.

Alonso setti ekki aðeins besta brautartíma dagsins heldur og vikunnar. Tók hann í dag við akstri af Felipe Massa sem var hraðskreiðastur í gær og fyrradag.

Svo mikilla vinsælda nýtur Alonso í heimalandinu að tæplega 40.000 manns lögðu leið sína til brautarinnar til að fylgjast með æfingum hans. Fyrstu tvo dagana voru áhorfendur rúm sjö þúsund hvorn dag.

Og Alonso var ekki lengi að finna fjölina sína, ef svo mætti segja, því áður en klukkustund var liðin hafði hann jafnað bestu tíma Massa og fyrir hádegi sá besti tími vikunnar dagsins ljós.

Eftir að hafa sett hraðasta hring í langaksturslotu hélt hann áfram í átta hringi og staðfesti með því að hraðinn var ekki vegna þess að lítið bensín var eftir í tönkunum.

Landi Alonso, Pedro de la Rosa, hélt áfram að koma á óvart á Sauberbílnum. Setti hann næstbesta tímann og var mun fljótari í förum en öllu frægari ökumenn, svo sem Michael Schumacher hjá Mercedes og Jenson Button hjá McLaren.

De la Rosa var hraðskreiður daginn út í gegn og það þrátt fyrir að hafa lent í samstuði snemma dagsins við Nico Hulkenberg hjá Williams.

Schumacher setti þriðja besta tímann en hermt er að á bíl hans vanti  endanlega útgáfu loftdreifis undir afturenda bílsins svo og framvæng. Var hann tæpri sekúndu lengur með hringinn en Alonso. Og hann gat ekki lokið æfingunni, varð að hætta klukkustund of snemma vegna lítilsháttar vökvakerfisbilunar.

Liðsstjórinn Ross Brawn játti eftir æfinguna, að liðið væri ekki í þeirri stöðu sem það hefði vænst, hvað hraða og jafnvægi í bílnum varðar. Hermt er að bæta þurfi þyngdardreifingu í bílnum til að ná betri vinnslu út úr framenda hans fyrir næsta reynsluakstur.

Spánverjar voru atkvæðamikli á æfingunni því Jaime Alguersuari bætti hraða Toro Rosso bílsins er hann náði fjórða besta hring dagsins. Var hann ögn fljótari en Button sem ók McLarenbíl í fyrsta sinn í dag.

Vitaly Petrov bætti hraða sinn jafnt og þétt á sínum fyrsta starfsdegi hjá Renault og í formúlu-1 bíl. Hermt er að Renault muni gera miklar breytinga rá yfirbyggingu og loftaflsflötum bílsins áður en vertíðin gengur í garð.

Niðurstaða æfingarinnar varð sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Alonso Ferrari 1:11.470 127
2. de la Rosa Sauber 1:12.094 80
3. Schumacher Mercedes 1:12.438 82
4. Alguersuari Toro Rosso 1:12.576 97
5. Button McLaren 1:12.951 82
6. Petrov Renault 1:13.097 75
7. Hulkenberg Williams 1:13.669 126
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is