Rosberg fljótastur

Rosberg leggur af stað. stækka

Rosberg leggur af stað. reuters

Nico Rosberg hjá Mercedes setti besta tímann er formúluliðin hófu aðra bílprófanalotu ársins í Jerez á Spáni í dag. Rigning háði liðunum öllum. Reyndar setti Rosberg besta tímann á fyrstu klukkstundinni, eða áður en hann tók að rigna að ráði.

Þrátt fyrir að hafa sett besta tímann endaði dagurinn illa fyrir Rosberg því bíll hans bilaði í miðri braut er skammt var eftir æfingatímans.  Hann var þó ánægður og sagðist hafa fundið sig mun betur í Mercedesbílnum en í Valencia í síðustu viku.

Næsthraðast ók Sebastien Buemi hjá Toro Rosso og munaði aðeins tíunda úr sekúndu á tímum þeirra. Allir hinir ökuþórarnir settu sína bestu tíma einnig á fyrstu klukkustundinni. 

Mark Webber frumók keppnisbíll Red Bull og lítt er að marka tíma hans því hann var enn að gangprófa kerfi bílsins og ekki byrjaður að botnkeyra er byrjaði að rigna.

Webber varð að hætta akstri úti í miðri braut eftir 47 hringi rétt fyrir hádegi vegna olíuleka. Viðgerð tók sinn tíma því hann komst ekki aftur af stað fyrr en er aðeins voru 15 mínútur eftir af deginum.

Force India bílnum, VJM03, var einnig frumekið í dag og setti Vitantonio Liuzzi sömuleiðis sinn besta tíma við kerfisprófanir í byrjun dags. 

Williamsliðið sagðist ánægt með hvernig Cosworthmótorinn hafi reynst en  Nico Hulkenberg ók samtals 118 hringi. Hann var einna fljótastur í rigningunni en setti þriðja besta tíma dagsins í byrjun dags. 

Fernando Alonso ók öðru sinni fyrir Ferrari en ók lítið sem ekkert fyrir hádegi. Ætlun liðsins var að spara bílinn þar til upp stytti eftir hádegi en vonir þess um að hann stytti upp rættust ekki. Notaði Alonso því tímann eftir hádegi til að aka í löngum lotum. Sagðist hann sáttur því gagnaöflun hefði gengið vel og það myndi nýtast til að gera bílinn endingartraustari.

Alonso sagði bílinn hafa verið mjög meðfærilegan í bleytunni og hann væri þægilegur og auðveldur viðureignar.

Margir ökuþórar spöruðu bílana vegna aðstæðna og kusu liðin að bíða frekar betra veðurs til morguns.

Keppnisbíl Virgin mætti sömuleiðis til sinnar fyrstu æfingar. Skortur á varahlutum olli því þó að Timo Glock gat ekki ekið fyrr en eftir hádegi. Eftir kerfisprófanir ók hann eina þriggja hringja lotu en hætti svo.

Æfingin gekk annars fyrir sig sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil Hri.
1. Nico Rosberg Mercedes 1:20.927 57
2. Sebastien Buemi Toro Rosso 1:21.031 +0.104 84
3. Nico Hulkenberg Williams 1:22.243 +1.316 118
4. Fernando Alonso Ferrari 1:22.895 +1.968 88
5. Kamui Kobayashi Sauber 1:23.287 +2.860 55
6. Jenson Button McLaren 1:24.947 +4.020 68
7. Vitantonio Liuzzi Force India 1:24.968 +4.041 71
8. Vitaly Petrov Renault 1:25.440 +4.513 27
9. Mark Webber Red Bull 1:26.502 +5.575 50
10. Timo Glock Virgin 1:38.734 +17.807 5
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is