Button ánægður með bílinn

Button á leið til þriðja besta tíma í Jerez. stækka

Button á leið til þriðja besta tíma í Jerez. reuters

Jenson Button var hæstánægður að lokinni tveggja daga æfingalotu á silfurör McLaren í Jerez á Spáni, en Lewis Hamilton tekur við reynsluakstri bílsins á morgun.

Button segist hafa náð að aðlagast bílnum vel og sér líði vel í honum. Ók hann alls 82 hringi í dag og setti þriðja besta tíma dagsins. Var Button reyndar með næstbesta tímann þar til á lokasekúndum æfingarinnar. 

Annað var uppi á teningnum í Valencia í síðustu viku og í Jerez í gær. Passaði hann ekki sem skyldi í bílsætið. Ástæðan mun sú, að Button er sjö sentimetrum stærri en Lewis Hamilton og því einfaldlega verið of stór í bílinn eins og hann var upp settur.

Fyrir bragðið skagaði hann of hátt upp úr stjórnklefanum og legan í bílnum hentaði honum ekki. Á þessu réðu tæknimenn McLaren bót í gær og nú er Button hæstánægður.

„Þetta var fínn dagur og ég finn mig frábærlega í bílnum. Það vel að nú gat ég unnið í uppsetningum, jafnvæginu og ýmsum öðrum þáttum bílsins. Að grunni til er bíllinn góður en mikil vinna framundan við að bæta hann. Út á það gengur reynsluaksturinn,“ sagði Button.
Button kveðst ánægður í silfurör McLaren.

Button kveðst ánægður í silfurör McLaren. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is