Dennis í „frægðarhöll“

Dennis og Lewis Hamilton á góðri stundu. stækka

Dennis og Lewis Hamilton á góðri stundu. ap

Ron Dennis, helsti eigandi McLarenliðsins, hefur verið tekinn inn í svonefnda „frægðarhöll“ akstursíþrótta sem tímaritið Motorsport hefur stofnað og hleypt var af stokkum við hátíðarathöfn í London sl. þriðjudag.

McLarenstjórinn fyrrverandi var tekinn inn í höllina við það tækifæri ásamt þremur fyrrverandi ökuþórum,  Tony Brookes, Jacky Ickx og Mario Andretti, sem varð heimsmeistari ökumanna árið 1978.

Dennis hefur starfað á vettvangi formúlunnar frá árinu 1966, en sama ár kom McLaren fram á sjónarsviðið. Hans fyrsta lið var þó Cooper.

„Það er lítt þekkt staðreynd að frá þessum tíma hafa á annað hundrað lið komið til leiks og horfið úr formúlu-1. Af liðunum sem voru í keppni árið 1966 lifa aðeins tvö í dag, Ferrari og McLaren.

Við getum borið höfuðið hátt, af 665 mótum sem við höfum tekið þátt í höfum við unnið 164, eða um fjórðung. Á verðlaunapalli höfum við verið í 352 mótanna, eða í rúmlega öðru hverjum kappakstri,“ sagði Dennis um hvað markverðast væri af ferlinum.

Á árlegri verðlaunahátíð breska akstursíþróttaritsins Autosport í desember sl. var Dennis veitt sérstök heiðursviðurkenning blaðsins fyrir langan og farsælan feril á vettvangi formúlunnar.

Við stofnun frægðarhallarinnar voru átta ökumenn gerðir að stofnmeðlum hennar. Þar er um að ræða frægustu nöfn formúlu-1; Tazio Nuvolari, Enzo Ferrari, Juan Manuel Fangio,  Stirling Moss, Jim Clark, Jackie Stewart, Ayrton Senna og Michael Schumacher.

Fjórmenningarnir sem fyrst eru nefndir voru síðan teknir inn í þennan frægðarhóp. Af stofnmeðlimunum voru viðstaddir Stirling Moss og Jackie Stewart.


 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is