Kobayashi í efsta sæti

Schumacher milli aksturslota í Jerez í dag. stækka

Schumacher milli aksturslota í Jerez í dag. reuters

Kamui Kobayashi hjá Sauber setti besta tímann við reynsluakstur formúluliða í Jerez á Spáni í dag. Hrifsaði hann toppsæti tímalistans á síðasta hring. 

Aðstæður voru mun betri í dag en í gær en þá var brautin lengst af blaut vegna rigningar. Þar sem þurrt var að mestu í dag voru tímar ökuþóranna miklu mun betri í dag.

Sebastien Buemi hjá Toro Rosso hafði verið hraðskreiðastur lengstan part dagsins, en naut ekki toppsætisins þegar upp var staðið; Kobayashi hafði hreppt það um það leyti sem æfingin var flautuð af.

Jenson Button hjá McLaren átti þriðja besta tímann en gat þó ekki klárað æfinguna þar sem silfurörin gafst upp og stoppaði í miðri braut er um 10 mínútur voru eftir.

Nico Hulkenberg þurfti einnig að leggja Williamsbílnum í dag vegna vökvakerfisbilunar. Tók skamma stund að gera við hana og setti hann fjórða besta tíma dagsins. Í gær ók Hulkenberg hraðst.

Lítið fór fyrir tveimur fyrrverandi heimsmeisturum. Michael Schumacher átti aðeins sjötta besta tímann á Mercedesbílnum og  Fernando Alonso aðeins þann sjöunda besta á Ferrari. Báðir einbeittu sér hins vegar að löngum aksturslotum og því alltaf bensínþungir.

Schumacher tók t.d. eina lotu upp á 35 sleitulausa hringi og Alonso ók í einni bunu 48 hringi án þess að stoppa. Undir lok hennar var hann býsna hraðskreiður, að nálgast bestu brautartíma. Alonso ók manna mest í dag, eða 129 hringi og voru tímar hans í lotunum löngu mun betri en hjá Schumacher.

„Ég er mjög ánægður með daginn þótt við gætum ekki klárað allt sem ætlunin var að gera,“ sagði Schumacher. „Mér tókst þó að aka mikinn fjölda hringja sem var mikilsvert. Mér leið vel og þægilega í bílnum,“ bætti hann við.

Renault ákvað að fela Robert Kubica aksturinn í dag til að ná sem mest út úr góðviðrisdeginum en útlit er fyrir vætu næstu tvo daga. Vitaly Petrov fékk því frí í dag en ekur aftur á morgun.

Timo Glock átti í vandræðum með Virginbílinn. Losnaði framvængurinn af bílnum í miðjum hring og vegna skorts á varavæng ók hann ekki meira þann daginn.

Niðurstaða æfingarinnar varð sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Kobayashi Sauber 1:19.950 103
2. Buemi Toro Rosso 1:20.026 121
3. Button McLaren 1:20.618 83
4. Hulkenberg Williams 1:20.629 67
5. Liuzzi Force India 1:20.754 80
6. Schumacher Mercedes 1:21.083 124
7. Alonso Ferrari 1:21.424 129
8. Kubica Renault 1:22.003 103
9. Webber Red Bull 1:22.043 99
10. Glock Virgin 1:29.964 11
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is