Alguersuari með besta tíma

Alguersuari í Jerez í dag. stækka

Alguersuari í Jerez í dag. reuters

Jamie Alguersuari, hinn 19 æára ökuþór Toro Rosso, átti besta hringinn á Jerezbrautinni í dag. Rigning setti annars strik í æfingarnar í dag.

Alguersuari setti besta tímann á fyrsta klukkutíma æfinganna eða meðan brautin hélst þurr. Eftir það tók að rigna og bætti í hana ef eitthvað var eftir hádegi.

Annar Spánverji, Pedro de la Rosa hjá Sauber, átti næst besta tímann. Þriðja besta hring átti Adrian Sutil hjá Force India.

Felipe Massa sneri aftur til starfa hjá Ferrari og þrátt fyrir takmarkaðan tíma við bestu aðstæður var hann aðeins tveimur tíundu úr sekúndu frá besta tíma félaga síns Fernando Alonso frá í gær.

Vitaly Petrov tók sömuleiðis aftur við akstri hjá Renault og vakti athygli fyrir stöðuga og góða tíma í rigningunni síðdegis. 

Aldursforsetinn Rubens Barrichellohjá Williams ók manna mest, eða 120 hringi. Var það 44 hringjum meira en næsti maður.

Virginliðið var ekki klárt með breytingar á trjónu bílsins fyrr en síðdegis. Hóf Lucas di Grassi ekki akstur fyrr en er tvær klukkustundir voru eftir.  Í raun  snerist akstur hans einungis um að ganga úr skugga um að breyting á festingum framvængs hefðu verið gagns.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Alguersuari Toro Rosso 1:19.919 76
2. de la Rosa BMW 1:20.736 58
3. Sutil Force India 1:21.428 48
4. Massa Ferrari 1:21.603 72
5. Vettel Red Bull 1:21.783 59
6. Petrov Renault 1:22.000 68
7. Rosberg Mercedes 1:22.820 53
8. Barrichello Williams 1:23.217 120
9. Hamilton McLaren 1:23.985 68
10. di Grassi Virgin 1:37.107 8
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is