Hamilton setti besta tíma vikunnar

Hamilton var brosmildur í æfingarlok í Jerez í dag. stækka

Hamilton var brosmildur í æfingarlok í Jerez í dag. reuters

Lewis Hamilton hjá McLaren ók hraðast á lokadegi fjögurra daga æfingalotu formúluliðanna í Jerez á Spáni í dag. Í leiðinni setti hann besta hring vikunnar. 

Tímanum náði Hamilton er aðeins voru 10 mínútur eftir af æfingunni en fram að því átti Adrian Sutil hjá Force India besta tímann. 

Brautir voru þurrar nær alla æfinguna og nýttu liðin sér það til hins ýtrasta. Flestir ökuþóranna tóku langar lotur á þungum bílum. Rubens Barrichello hjá Williams  setti þannig þriðja besta tíma dagsins á fjórða hring af 11 hringja lotu. Ók hann einungis í löngum lotum í dag í þeim tilgangi að ná sem mestu út úr Cosworthvélinni.

Robert Kubica hjá Renault setti fjórða besta tímann og Michael Schumacher hjá Mercedes þann fimmta besta. Hann neyddist til að stoppa á miðjum hring eftir þann hraðasta þar sem bensínið gekk til þurrðar áður en hann gat klárað innhringinn.

Felipe Massa ók manna lengst í dag, eða sem svarar rúmlega tveimur kappakstursvegalengdum. Virgin liðið hafði ástæðu til að brosa því loks tókst því að æfa sem skyldi. Vegna skorts á varahlutum gat það einungis ekið 24 hringi síðustu þrjá dagana, en Lucas di Grassi margfaldaði þá tölu í dag og var miklu nær tímum annarra ökuþóra en síðustu daga.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll tími Bil Hri.
1. Lewis Hamilton McLaren 1:19.583 113
2. Adrian Sutil Force India 1:20.180 +0.597s 83
3. Rubens Barrichello Williams 1:20.341 +0.758s 90
4. Robert Kubica Renault 1:20.358 +0.775s 85
5. Michael Schumacher Mercedes 1:20.613 +1.030s 83
6. Sebastian Vettel Red Bull 1:21.203 +1.620s 89
7. Felipe Massa Ferrari 1:21.485 +1.902s 160
8. Pedro de la Rosa Sauber 1:22.134 +2.551s 105
9. Lucas di Grassi Virgin 1:22.912 +3.329s 63
10. Jaime Alguersuari Toro Rosso 1:24.072 +4.489s 98
Schumacher slekkur þorstann milli æfingalota í dag.

Schumacher slekkur þorstann milli æfingalota í dag. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is