Red Bull hraðskreiðastur

Vettel í Jerez í dag. stækka

Vettel í Jerez í dag. reuters

Sebastian Vettel hjá Red Bull ók langhraðast við bílprófanir í Jerez á Spáni í dag. Þar hófst þriðja þróunaraksturslotan í ár og gerði skúraveður ökumönnum lífið leitt.

Inn á milli skúranna braust sólin í gegnum skýin og reyndu ökumenn að nýta sér þær stundir sem best. Í einu skúrahléinu rétt eftir hádegi setti Vettel besta tíma dagsins.

Er brautin var að þorna eftir eina skúrina í viðbót á síðustu mínútum æfingarinnar skaust Lewis Hamilton hjá McLaren upp í annað sætið, fram úr Felipe Massa hjá Ferrari. 

Sebastien Buemi hjá Toro Rosso setti fjórða besta tímann, á undan Pedro de la Rosa hjá Sauber og Michael Schumacher hjá Mercedes. Meistarinn fyrrverandi ók manna mest í dag, eða 111 hringi.

Schumacher sagði erfitt að fara eftir áætlun dagsins vegna breytilegs veðurs. Af sömu ástæðu væri erfitt að gera sér góða grein fyrir getu annarra ökumanna.

Æfingin var annars söguleg sakir þess að þetta var fyrsta opinbera æfing Lotusliðsins nýja. Varaökumaðurinn Fairuz Fauzy sá um aksturinn og lagði að baki 76 hringi sem þykir gott hjá nýliðum.

Fauzy var býsna langt frá besta brautartíma en sló þó við Timo Glock hjá Virgin sem gat aðeins ekið 10 hringi.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Vettel Red Bull 1:22.593 99
2. Hamilton McLaren 1:23.017 72
3. Massa Ferrari 1:23.204 72
4. Buemi Toro Rosso 1:23.322 79
5. de la Rosa BMW 1:23.367 76
6. Schumacher Mercedes 1:23.803 111
7. Sutil Force India 1:24.272 28
8. di Resta Force India 1:25.088 74
9. Petrov Renault 1:26.237 55
10. Barrichello Williams 1:27.320 109
11. Fauzy Lotus 1:31.848 76
12. Glock Virgin 1:32.417 10
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is