Barrichello bestur í bleytunni í Jerez
Brautin var aldrei algjörlega þurr yfir daginn þótt ekki rigndi stöðugt.Besta hringinn setti Barrichello um hádegisbil er aðstæður voru hvað bestar. Stuttu seinna byrjaði aftur að skúra og bætti enginn um betur það sem eftir var dagsins.
Vitaly Petrov hjá Renault nýtti sér aðstæður um eittleytið einnig til hins ítrasta og setti þá sinn besta tíma og annan besta hring dagsins. Í þriðja sæti varð Sebastian Vettel hjá Red Bull sem hraðast ók í gær.
Í fjórða og fimmta sæti urðu Nico Rosberg hjá Mercedes og Felipe Massa hjá Ferrari.
Virgin gat ekið mun meira í dag en gær er Timo Glock náði aðeins 10 hringjum. Í dag lagði hann að baki 72 hringi og setti áttunda besta tíma dagsins.
Ekki gekk æfingin þó vandræðalaust fyrir Glock en hann varð tvisvar að leggja bílnum í miðri braut vegna bilana.
Lotus liðið átti ágætan dag í gær en annað var uppi á teningnum í dag. Heikki Kovalainen tók við af Fairuz Fauzy. Hann missti vald á bílnum í beygju og skemmdi hann að framanverðu er hann rakst utan í vegg.
Vegna skorts á varahlutum varð Lotusliðið að hætta akstri á þessu stigi, en þá voru enn fjórir klukkutímar eftir. Kovalainen tók óhappið á sig, sagðist einfaldlega hafa gert akstursmistök.
Pedro de la Rosa og Sauber áttu enn verri dag því eftir aðeins átta hringi fyrir hádegi var bíllinn tekinn inn í bílskúr. Þaðan kom hann ekki meira út í dag. Fannst liðinu aðstæður þess háttar að gagnslaust væri að aka við þær.
| Röð | Ökuþór | Bíll | Tími | Hri. |
|---|---|---|---|---|
| 1. | Barrichello | Williams | 1:27.145 | 98 |
| 2. | Petrov | Renault | 1:27.828 | 56 |
| 3. | Vettel | Red Bull | 1:28.162 | 70 |
| 4. | Rosberg | Mercedes | 1:28.515 | 71 |
| 5. | Massa | Ferrari | 1:28.879 | 92 |
| 6. | de la Rosa | BMW | 1:29.691 | 8 |
| 7. | di Resta | Force India | 1:30.344 | 33 |
| 8. | Glock | Virgin | 1:30.476 | 72 |
| 9. | Liuzzi | Force India | 1:30.666 | 24 |
| 10. | Hamilton | McLaren | 1:31.633 | 57 |
| 11. | Buemi | Toro Rosso | 1:32.678 | 57 |
| 12. | Kovalainen | Lotus | 1:33.554 | 30 |







