Webber langfljótastur

Aksturinn gekk ekki alveg þrautalaust hjá Webber. Í miðjum klíðum varð hann að stöðva í ... stækka

Aksturinn gekk ekki alveg þrautalaust hjá Webber. Í miðjum klíðum varð hann að stöðva í miðri braut vegna bilunar. reuters

Mark Webber hjá Red Bull ók langhraðast í dag við reynsluakstur í Jerez á Spáni, en loks fengu ökumenn rigningarlausan dag þar. Skein sólin í heiði nær allan daginn. 

Besti brautartími Webber er sá besti í vikunni og ekki að undra þar sem brautir voru lítt þurrar í gær og fyrradag. Sömuleiðis er tími hans besti í Jerez í ár, tæplega tveimur tíundu úr sekúndu betri en Lewis Hamilton hafði sett í fyrri æfingalotu í brautinni í byrjun febrúar.

Fernando Alonso tók við af Felipe Massa hjá Ferrari og setti næstbesta tímann. Notaði hann tíman vel og lagði vandræðalaust að baki 132 hringi.

Vinnuvikan hófst sömuleiðis hjá Jenson Button í dag og það ekki sem verst því hann setti þriðja besta tíma dagsins á silfurör McLaren. Næstir honum urðu Þjóðverjarnir Nico Hulkenberg hjá Williams og Michael Schumacher hjá Mercedes.

Nýliðar Virgin og Lotus fengu sinn skerf af vandamálum í dag. Þrisvar stöðvuðu ökumenn þeirra í miðri braut vegna bilana svo að hlé varð að gera á akstri í öll skipti.

Heikki Kovalainen stoppaði vegna bilunar í rafeindastýringum kúplingar snemma dags en gat ekið að nýju eftir viðgerð og lagði að baki alls 68 hringi.

Hjá Virgin tók Lucas di Grassi við af Timo Glock og stöðvaðist hann tvisvar í brautinni vegna ótilgreindra bilana. 

Dagurinn var misheppnaður hjá Sauber. Kamui Kobayashi neyddist til að stoppa í miðri braut eftir um tvær stundir vegna bilunar í bensínkerfi bílsins. Tók viðgerð fimm klukkutíma og því var aðeins um klukkustund eftir er Kobayashi gat hafið akstur á ný um klukkan 16.

Niðurstaða akstursins í dag varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Webber Red Bull 1:19.299 115
2. Alonso Ferrari 1:20.115 132
3. Button McLaren 1:20.394 101
4. Hulkenberg Williams 1:21.432 138
5. Schumacher Mercedes 1:21.437 79
6. Kubica Renault 1:21.916 100
7. Sutil Force India 1:21.939 69
8. Kobayashi BMW 1:22.228 28
9. Alguersuari Toro Rosso 1:22.564 120
10. di Grassi Virgin 1:23.504 34
11. Kovalainen Lotus 1:23.521 68
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is