Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 1.3.2010
| 16:04
| Uppfært
16:23
Kubica býst ekki við að keppa um pallsæti í Barein
Robert Kubica segist ekki búast við því að Renaultbíllinn verði nógu góður til að keppa um pallsæti í fyrsta móti ársins, í Barein eftir tæpan hálfan mánuð.
Hann er þó vongóður um að við bílprófanir að undanförnu hafi liðinu tekist að saxa á sterkustu keppinautana.„Við munum reyna að koma okkur í keppni um toppsætin en það getur reynst erfitt, sérstaklega í byrjun keppnistíðar,“ segir hann.
„Vonandi verðum við samkeppnisfærir frá upphafi og náum góðri byrjun. En við verðum að vera raunsæir og því keppum við líkast til ekki um pallsæti í Barein.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







