Rosberg: Einungis eftir að fínstilla uppsetningar

Rosberg á Mercedesbílnum. stækka

Rosberg á Mercedesbílnum. reuters

Nico Rosberg sagði eftir lokalotu bílprófana fyrir keppnistímabilið, að Mercedesliðið ætti einungis eftir að fínstilla uppsetningar bílsins. Að öðru leyti væri liðið klárt í keppnina um toppsætin frá og með fyrsta móti.

Rosberg ók hraðast við bílprófanir í Barcelona á laugardag og var einkar ánægður með Mercedesbílinn. „Almennt séð er ekki neinn veikleika í honum að finna sem stendur,“ sagði Rosberg.

„Við þurfum einungis að ná betri tökum á uppsetningunni til þess að geta náð út úr honum það sem í bílnum býr. Það er viðfangsefni okkar og miðar því í rétta átt,“ bætti hann við.

Rosberg segist fara með hýrri há til fyrsta mótsins, í Barein eftir tæpan hálfan mánuð. Hann segist kunna vel við sig í stjórnklefa Mercedesbílsins og falli vel inn í liðið.

„Það er erfitt að segja hvar við stöndum en ég er fullur sjálfstrausts í bílnum, það er gott að keyra hann og ég mun sækja fram á honum.“

 
Rosberg segist mæta bjartsýnn til leiks.

Rosberg segist mæta bjartsýnn til leiks. reuters

Rosberg segir góða tilfinninguna fylgja því að keyra Mercedesbílinn.

Rosberg segir góða tilfinninguna fylgja því að keyra Mercedesbílinn. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is