Schumacher vongóður

Schumacher á stund milli stríða í lokaprófunum liðanna í Barcelona í síðustu viku. stækka

Schumacher á stund milli stríða í lokaprófunum liðanna í Barcelona í síðustu viku. reuters

Michael Schumacher er ekki alltof bjartsýnn á að Mercedesliðið geti keppt til sigurs í fyrstu mótum komandi vertíðar. Hann útilokar það ekki og segir niðurstöðu bílprófana að undanförnu gefa vissar vonir.

Schumacher var svartsýnn á föstudaginn var og efaðist þá um samkeppnisfærni Mercedesliðsins. Daginn eftir var annað uppi á teningnum og sagðist hann þá öllu bjartsýnni en daginn áður. 

Þau sinnaskipti sagði hann stafa af því að hann hefði lagst yfir gögn úr reynsluakstrinum á föstudag og laugardag og sæi málið í nýju ljósi.

„Útlitið er mun betra en mér sýndist, það byggðist á tilfinningum en eftir að hafa rannsakað gögnin er útlitið mun betra en ég hélt. Við vorum ef til vill að keyra mun hlaðnari af eldsneyti á föstudag en aðrir. Því var útlitið ekki gott, en það er í raun ekki svo slæmt,“ segir Schumacher.

Heimsmeistarinn fyrrverandi vill þó ekki vera með mikla spádóma. Spurður hvort liðið myndi fagna sigri svaraði hann: „Kannski, kannski ekki. Það er mikilvægara að sjá hvað á sér stað undir lok vertíðarinnar en í fyrsta móti.

Við verðum að vera skammt frá toppnum. Séum við ekki í stöðu til að keppa til sigurs í fyrsta móti mun ég ekki hafa miklar áhyggjur. Séum við tveimur sekúndum á eftir á hring, þá er hins vegar ástæða til að hafa áhyggjur - en ég held að staðan sé ekki sú."

Og spurður um hver sé sigurstranglegastur í ár sagði Schumacher: „Ég held að Felipe [Massa] og Fernando [Alonso] séu bestir í stöðunni. Þeir hafa verið að gera góða hluti á æfingum. Ég þekki lið og veit því að þeir hafa ástæðu til að gleðjast. Ég er ekkert hissa á því.

Ekki veit ég hvort einhverjir hafa sýnt á öll spilin að undanförnu, jafnvel með þá reynslu sem ég bý yfir á ég erfitt með að átta mig á því. Mörg llið virðast mjög samkeppnisfær.“


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is