Klaga afturvæng McLaren

Bílhlutinn umdeildi kom í ljós við frumsýningu bílsins í lok janúar sl. stækka

Bílhlutinn umdeildi kom í ljós við frumsýningu bílsins í lok janúar sl. mbl.is/mclarenf1

Sjaldnast hefur verið skortur á klögumálum í formúlu-1. Nú er hið fyrsta í ár komið upp. Keppnisliðin Red Bull og Ferrari hafa klagað afturvæng McLarenliðsins til Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) og óskað eftir staðfestingu þess á lögmæti hans.

Þetta staðfestir liðsstjóri Red Bull, Christian Horner.  Hann kveðst gera sér vonir um að niðurstaða liggi fyrir áður en fyrsti kappakstur komandi vertíðar fer fram í Barein í næstu viku.

Því er haldið fram, að hönnun kæliturns vélarhúss McLarenbílsins og vélarhlífin, sem samtengd er afturvængnum, stuðli að því að afturvængurinn ofrísi á mikilli ferð en með því næst fram aukinn bílhraði á beinlínuköflum.

Horner segir að í vængnum sé rauf er leiði til þess að ná megi mun meiri hraða úr bílnum á beinum kafla en ella. „Við höfum óskað eftir afstöðu FIA til málsins en ég held þó Ferrari sé mun ákafari í því efni en við,“ sagði Horner við breska blaðamenn í vikunni. Hann telur að með hönnuninni sé McLaren að reyna komast kringum reglur sem tóku á hönnun sem ætlað var að koma í veg fyrir að liðin gætu látið afturvænginn ofrísa, eins og það er kallað, en þá hverfur loftmótstaða hans og fyrir vikið næst mun meiri hraði eftir ofrisið.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is