McLarenmenn sannfærðir um lögmæti afturvængsins

Afturvængur McLarenbílsins er nokkuð frábrugðinn væng annarra liða, og tenging hans við kæliturninn er umdeild. stækka

Afturvængur McLarenbílsins er nokkuð frábrugðinn væng annarra liða, og tenging hans við kæliturninn er umdeild. mbl.is/mclarenf1

McLarenliðið segist ekkert óttast vegna umdeildrar hönnunar á afturvæng en bæði Red Bull og Ferrari hafa óskað eftir áliti og afstöðu Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) til vængsins.

McLarenmenn telja sig vera innan ramma tækniregla formúlunnar, en fulltrúar Red Bull og Ferrari eru óánægðir með hvernig lausn McLaren nýtir kæliturn og vélarhlíf bílsins til að eyða loftmótstöðu vængsins á mikilli ferð - og þar með gera bílinn hraðskreiðari á löngum beinum köflum.

Christian Horner liðsstjóri Red Bull sagði í gær, að Ferrari væri eiginlega mun áhugasamara um vængmálið en lið sitt. Fulltrúi McLaren dró það í efa og sagði svo virðast sem Ferrari tækið málið ekki jafn alvarlega og Red Bull.

„Við erum sannfærðir um að okkar bíll er fullkomlega innan regla og höfum ekki orðið varir við nein mótmæli. Staðreyndin er sú, að við höfðum samband við Ferrari í morgun og þeir vita ekki um nein mótmæli heldur,“ sagði talsmaður McLaren í morgun.

Þá hefur vefsetrið autosport.com eftir heimildarmönnum hjá Ferrari að þar á bæ verði ekki aðhafst neitt frekar í málinu og útilokað væri að liðið legði fram formlega kæru.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is