Lá við að Hamilton hætti eftir hneykslið í Melbourne

Hamilton við reynsluakstur 2010-bíls McLaren. stækka

Hamilton við reynsluakstur 2010-bíls McLaren. reuters

Lewis Hamilton hefur skýrt frá því, að ekki hafi mikið vantað á að hann hætti keppni og léti sig hverfa af vettvangi formúlu-1 eftir hneykslið í ástralska kappakstrinum þar sem hann afvegaleiddi dómara kappakstursins.

Að fyrirmælum liðsstjóra hjá McLaren, Dave Ryan, gaf Hamilton villandi yfirlýsingar hjá dómurunum er þeir rannsökuðu framúrakstur Jarno Trulli hjá Toyota meðan öryggisbíll var í brautinni.   

Er upp komst um málið var Trulli sýknaður af broti sem hann var dæmdur í en McLaren og Hamilton refsað, með þriggja móta skilorðsbundnu keppnisbanni. Þá leiddi málið til þess að Dave Ryan var rekinn frá liðinu en þar hafði hann starfað um langt árabil.

Hamilton sætti harðri gagnrýni vegna hneykslisins og varð það til þess að hann íhugaði að hætta keppni í formúlu-1. „Það gekk mjög mikið á. Mér er ekki sama hvað fólk heldur um mig og mér fannst eins og ég ætti jafnvel ekki heima í íþróttinni lengur. Þetta var ekki spurningin um að yfirgefa McLaren, heldur fara úr íþróttinni.

McLaren er draumalið mitt og hér hef ég verið frá upphafi ferilsins. Mig hefur aldrei langað að keppa fyrir annað lið. Því snerist hugsunin ekki um að yfirgefa liðið, heldur snúa alveg baki við keppni. Mér fannst ágjöfin of mikil og spurði mig hvernig ég gæti siglt út úr brotsjónum.“

Hamilton segist þakka það sýndum stuðningi og hvatningu í framhaldinu að hann lét slag standa og hvikaði hvergi. „Ég fékk stuðning úr fjölskyldunni, frá liðinu, stuðningsmönnum, ótrúleg stuðningsbréf bárust. Ég sá að ég fengi annað tækifæri eftir þessi mistök, með öllum þessum stuðningi,“ segir Hamilton.

Lewis Hamilton var skapi næst að hætta keppni.

Lewis Hamilton var skapi næst að hætta keppni. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is