Ferraristjóri: Ekkert svigrúm fyrir mistök

Ferraristjórinn Stefano Domenicali. stækka

Ferraristjórinn Stefano Domenicali. reuters

Ferraristjórinn Stefano Domenicali segir að hvorki hans lið né önnur hafi efni á mistökum í ár, svo jöfn séu keppnisliðin við vertíðarbyrjun, en fyrsti kappakstur ársins fer fram um næstu helgi.

Gengi Ferrari í fyrra var afleitt á mælikvarða liðsins en það hafnaði í fjórða sæti í stigakeppni liðanna og fangaði aðeins einu sinni mótssigri, er Kimi Räikkönen kom fyrstur á mark í Spa í Belgíu.

Í ár gerir Ferrari sér vonir um að vinna heimsmeistaratitil bílsmiða. Og með því að komast aftur á sigurbraut eftir slakt ár í fyrra er ætlunin að landa einnig titli  ökuþóra.

„Ég hef ekki fyrir venju að vera með spádóma en augljóst er að keppnin verður jöfn í ár, ólíkt því sem var í fyrra,“ segir Domenicali á vefsetri Ferrari. Áður en bílprófanir hófust töldum við að fjögur lið myndu geta keppt um titlana í ár.En miðað við það sem við höfum séð til liðanna undanfarið verða þau enn fleiri í þeirri stöðu.

Og ýmsum spurningum er enn ósvarað, svo sem hvernig dekkin reynast við mikinn  brautarhita og einnig hvernig herfræðinni verður stýrt. Og þegar getan er svo jöfn geta lítilsháttar mistök orðið til þess að lið kemst ekki í lokaumferð tímatökunnar. Það þýðir að við verðum ætíð að leggja allt í sölurnar - liðið, ökumennirnir, bílarnir.

Við vitum að við erum í keppni við mjög öflug lið sem lagt hafa hart að sér við bílþróunina í vetur og vilja sigra. Við erum klárir í þann slag,“ segir Domenicali.


Ferrari er klárt til keppni.

Ferrari er klárt til keppni. reuters

Massa á ferð við reynsluakstur en þeir Alonso munu gera tilkall til titils ökuþóra í ...

Massa á ferð við reynsluakstur en þeir Alonso munu gera tilkall til titils ökuþóra í ár. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is