Liuzzi óttast fyrstu beygju
Vitantonio Liuzzi hjá Force India mun hafa varann á sér þegar hann nálgast fyrstu beygju eftir ræsingu í komandi mótum. Bílarnir verða þá stútfullir af bensíni og hafa ekki verið þyngri í ræsingu frá 1993.
Bann við bensínáfyllingu í keppni mun ekki aðeins leiða til þess að bílarnir verði þyngri og algjörlega nýrrar nálgunar í gerð keppnisáætlana. Ökumenn verða einnig að sýna sérstaka natni varðandi dekkjanotkun allt frá ræsingu og bensínhleðslan mun einnig kalla á nýja hugsun varðandi bremsusvæði.
Og þar kemur að fyrstu beygju, þegar bílarnir æða mót henni í þéttum hóp strax eftir ræsinguna. „Hún verður ekki auðveld, með 160 kíló á tankinum í ræsingunni. Slíkt höfum við ekki reynt áður svo fyrsta beygjan verður erfið með kaldar bremsur og miklu þyngri bíla en venjulega. Ég held fjörið verði mikið þar - og óhöpp líka,“ segir Liuzzi.







