Massa segir nýju liðin slæm fyrir formúluna

Massa er ekki par hrifinn af nýju liðum formúlu-1. stækka

Massa er ekki par hrifinn af nýju liðum formúlu-1. reuters

Felipe Massa hjá Ferrari er ekki ýkja hrifinn af hinum nýju liðum formúlunnar. Segir hann hlutfallslega slaka getu bíla þeirra slæma auglýsingu og geti jafnvel ógnað öryggi fremstu manna í kappakstri.

Það er ekki aðeins að vinnuveitendur Massa hjá Ferrari hafi gagnrýnt harkalega hvernig staðið var að fjölgun liða í formúlu-1. Og brasilíski ökuþórinn hefur áhyggjur af hraðaskorti nýju bílanna.

„Ég vona þeir skapi ekki hættu. Munurinn á bílum sex til sjö fremstu liðanna er innan við sekúnda á hring. Nýju liðin eru hins vegar fjórum sekúndum lengur með hringinn. Það er ekki gott fyrir íþróttina og heldur ekki fyrir þau. Það er eins og þau séu í annarri keppni,“ segir Massa við ítalska íþróttadagblaðið Corriere della Sera en samtalið er endurbirt á heimasíðu Ferrari.

„Nýju liðin munu þjást. Og við líka þegar þau verða á undan okkur á brautinni í tímatökum,“ bætir Massa við.

Bílar Lotus og Virgin hafa reynst langt á eftir bílum annarra liða við reynsluakstur undanfarnar vikur. Þriðja nýja liðið, Hispania, hefur ekkert reynsluekið sínum bíl en fyrsta mót ársins fer fram í Barein við Persafló um komandi helgi.


Hispania mætir til leiks án þess að bíl liðsins hafi verið reynsluekið.

Hispania mætir til leiks án þess að bíl liðsins hafi verið reynsluekið. reuters

Bruno Senna (l.t.v.) og Karun Chandhok (l.t.h.) geta fyrst ekið bílum liðs Jose Ramon Carabante ...

Bruno Senna (l.t.v.) og Karun Chandhok (l.t.h.) geta fyrst ekið bílum liðs Jose Ramon Carabante (í miðjunni) í Barein. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is