Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 8.3.2010
| 18:04
Moss hrapar niður lyftuop
Breska kappakstursgoðið Stirling Moss lifði af stórhættulega keppni á sjötta og sjöunda áratug nýliðinnar aldar. Um helgina slapp hann og vel en hlaut þó alvarleg meiðsl er hann hrapaði niður um lyftuop á heimili sínu í London.
Þegar Moss hugðist ganga inn í lyftuna á þriðju hæð reyndist hún vera enn á hæðinni fyrir ofan. Féll hann því niður þrjár hæðir; ökklabrotnaði á báðum fótum og brotnaði á fjórum stöðum öðrum í löppunum og hryggjarliðir skemmdust.
Mildi þykir að Moss skyldi ekki hljóta neina innvortis áverka. Meiðsl hans eru ekki lífshættuleg og var búist við því að hann fengi að fara af gjörgæslu í dag. Og þrátt fyrir hina slæmu áverka og alvarleik slyssins segir eiginkona Moss, að hann hafi slegið á létta strengi á spítalanum í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







