Senna brattur

Bruno Senna (með húfu) og Karun Chandhok keppa fyrir Hispania í ár. stækka

Bruno Senna (með húfu) og Karun Chandhok keppa fyrir Hispania í ár.

Jafnvel þótt splunkunýjum keppnisbíl Hispanialiðsins hafi ekki verið ekið er ökuþórinn Bruno Senna á því að hann sé hraðskreiðari en bílar hinna nýju liðanna tveggja, Lotus og Virgin.

Senna sver sig í ættina en móðurbróðir hans, Ayrton Senna, hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekki á þeim. 

Reyndar byggir Senna þessa skoðun sína á upplýsingum frá bílsmiðnum Dallara hinum ítalska, sem m.a. framleiðir bíla fyrir GP2-mótaröðina. Hann hefur mikla reynslu af smíði alls kyns keppnisbíla og dregur ályktun af útkomu á mælingum í vindgöngum og reiknilíkönum.

„Við æfingar í Barcelona voru Lotus og Virgin aðeins um sekúndu fljótari með hringinn en GP2-bílar en um þá hefur Dallara öll gögn. Og samkvæmt útreikningum þeirra ættum við frá fyrsta degi að vera tveimur sekúndum fljótari en GP2-bílar,“ segir Senna í dálki sem hann skrifar fyrir vikuritið Motorsport Magazin.

Hann bætir því við að það fari þó eftir því hvort Dallarabíllinn reynist stöðugur strax frá byrjun. „Ég vona við verðum á undan þeim,“ segir Senna.

Bruno Senna.

Bruno Senna. reuters

Bruno Senna er bjartsýnn á gengi Hispanialiðsins.

Bruno Senna er bjartsýnn á gengi Hispanialiðsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is