Force India vill stig að staðaldri

Adrian Sutil leggur af stað í aksturslotu við bílprófanir nýverið. stækka

Adrian Sutil leggur af stað í aksturslotu við bílprófanir nýverið. mbl.is/forceindaf1

Vijay Mallya, eigandi og liðsstjóri Force India, kveðst vongóður um að liði hans takist að vinna stig að staðaldri í mótum í ár. Það er markmið þess, en liðið lauk liðnu keppnistímabili nokkuð öflugt og vonar Mallya að byrjunin í ár verði í sama dúr.

„Við lukum keppnistímabilinu 2009 kröftuglega - unnum okkar fyrstu stig, komumst á verðlaunapall, færðumst upp um sæti í keppni liðanna,“ segir Mallya í aðdraganda fyrsta móts ársins, í Barein komandi sunnudag. 

„Það eitt í sjálfu sér dugar til þess að við setjum markið hærra í ár og við erum ákveðnir í að komast stigi ofar. Stig að staðaldri og stöku sæti á verðlaunapalli  hlýtur að vera takmarkmið í ár. Ég hef tröllatrú á ökumönnunum og tækniliði okkar, það smellur allt mjög saman hjá okkur,“ bætir hann við.

Mallya segir að góður árangur við reynsluakstur að undanförnu gefi mannskap sínum góðar vonir. Ökuþórinn Tonio Liuzzi er á því að Force India eigi að geta unnið stig strax í fyrsta mótinu.

„Við viljum sýna í fyrsta móti að vetrarstarf okkar hefur borið ávöxt. Takmarkið er að vinna stig og að komast í hóp 10 bestu, eins ofarlega og hægt er,“ segir Liuzzi.


Liuzzi ætlar að vinna stig í Barein.

Liuzzi ætlar að vinna stig í Barein. mbl.is/forceindiaf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is